AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Frábæru trúnaðarmanna- námskeiði lokið

Góðir félagar!

Þá er enn einu frábæru trúnaðarmannanámskeiði lokið. Fimmtán manns vítt og breitt af félagssvæðinu og úr hinum ýmsu geirum vinnumarkaðarins sátu námskeiðið, og var gerður góður rómur að. Að þessu sinni var farið í fyrsta hlutann sem var bæði fróðlegur og skemmtilegur, allt í bland. Ekki er við öðru að búast þegar Sigurlaug Gröndal annars vegar sem leiðbeinandi og okkar frábæru trúnaðarmenn leiða hesta sína saman. Ekki má gleyma aðbúnaði námskeiðsins, en segja má að staðarhaldari Staðarborgar í Breiðdal leggi mikinn metnað í að gera vel við okkar fólk í mat og öðrum viðgjörningi þann tíma sem námskeiðið stendur yfir.

Námskeiðið, sem eins og áður er sagt var frábært í alla staði, fór ekki einungis fram að degi til heldur hélt hópurinn áfram langt fram eftir kvöldi að ræða landsins gagn og nauðsynjar og er mér til efs að nokkurt málefni hafi staðið uppi óleyst þegar gengið var til hvílu að kvöldi.

Sem sagt – frábært námskeið og frábært fólk sem ég hlakka til að hitta aftur ásamt fleiri af okkar ágætu trúnaðarmönnum á næsta námskeiði í vor. Sjá myndir

Kv Gunnar

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi