AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Sjómenn: Kynningarfundir á morgun kl. 11:00

 

AFL Starfsgreinafélag heldur kynningarfundi um nýgerðan kjarasamning á morgun þriðjudag kl. 11:00.  Fundirnir verða allir á sama tíma í húsnæði Austurbrúar á Vopnafirði, Egilsstöðum, Reyðarfirði og Neskaupstað og í húsnæði Háskólafélagsins í Nýheimum á Höfn.  Formaður Sjómannadeildar AFLs, Grétar Ólafsson, kynnir nýgerðan kjarasamning og einnig verður Valmundur Valmundarson, formaður Sjómannasambandsins með á fundinum í fjarfundabúnaði frá Vestmannaeyjum.

 

Samningur 
milli
Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS)
og
Samtaka atvinnulífsins (SA)
annars vegar  
og
hins vegar 
Sjómannasambands Íslands (SSÍ)
fyrir hönd,

Sjómannafélags Hafnarfjarðar, Verkalýðsfélags Akraness, Verkalýðsfélags Snæfellinga, Verkalýðs- og sjómannafélags Bolungarvíkur, Stéttarfélagsins Samstöðu, Öldunnar - stéttarfélags, Sauðárkróki, Sjómannafélags Ólafsfjarðar, Sjómannafélags Eyjafjarðar, Framsýnar, stéttarfélags, Verkalýðsfélags Þórshafnar, ASA vegna AFL-starfsgreinafélags, Sjómannafélagsins Jötuns, Vestmannaeyjum, Verkalýðsfélagsins Bárunnar, Eflingu stéttarfélagi, Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur og nágrennis og Verkalýðs- og sjómannafélags Sandgerðis og VerkVest,

um framlengingu á kjarasamningum aðila með eftirfarandi breytingum:

 

1.   Hækkun kaupliða

Grein 1.03 í kjarasamningi SFS og SSÍ og sambærileg grein í samningi ASA og VerkVest orðist þannig vegna breytinga á kauptryggingu og annarra kaupliða:

„Þann 1. nóvember 2016 verður kauptrygging háseta kr. 288.168, kauptrygging matsveins, fyrsta og annars vélstjóra og vélavarðar, bátsmanns og netamanns kr. 360.210 og yfirvélstjóra kr. 432.252. Aðrir launaliðir en starfsaldurálag og tímakaup hækka um 9,6%. Mánaðarlaun aðstoðarmanns í eldhúsi á frystitogurum verða kr. 328.334.

Þann 1. maí 2017 verður kauptrygging háseta kr. 301.136, kauptrygging matsveins, fyrsta og annars vélstjóra og vélavarðar, bátsmanns og netamanns kr. 376.420 og yfirvélstjóra kr. 451.704. Aðrir launaliðir en starfsaldurálag og tímakaup hækka um 4,5%. Mánaðarlaun aðstoðarmanns í eldhúsi á frystitogurum verða kr. 343.109.

Þann 1. maí 2018 verður kauptrygging háseta kr. 310.170, kauptrygging matsveins, fyrsta og annars vélstjóra og vélavarðar, bátsmanns og netamanns kr. 387.713 og yfirvélstjóra kr. 465.255. Aðrir launaliðir en starfsaldurálag og tímakaup hækka um 3,0%. Mánaðarlaun aðstoðarmanns í eldhúsi á frystitogurum verða kr. 353.402.“

Þann 1. desember 2018 verður kauptrygging háseta kr. 326.780, kauptrygging matsveins, fyrsta og annars vélstjóra og vélavarðar, bátsmanna og netamanns kr. 408.476 og yfirvélstjóra kr. 490.170.

Tímakaup skal miðast við deilistuðulinn 173,33 í kauptryggingu. (Aðrar deilitölur hjá vélstjórum).

Fæðispeningar tóku hækkun um 2,1% 1. júní 2016 sl. (vísitala 1

67,3 stig m.v. janúar 2008 sem grunn) og skulu síðan endurskoðaðir árlega þann 1. maí ár hvert á gildistíma samningsins, fyrst þann 1. maí 2017, og taka þá breytingum miðað við matvörulið vísitölu neysluverðs sem birt er af Hagstofu Íslands í apríl ár hvert. 

 

2.         Mælingar skipa

Ný málsgrein bætist við gr. 1.32 í kjarasamningi SFS og SSÍ  og sambærilega grein í samningi ASA og VerkVest:

„Útgerð skal brúttórúmlestamæla skip sem það er með í rekstri, hafi skipið ekki verið með slíka mælingu fyrir. Mælingin skal skráð í skipaskrá.“

 

3.         Olíuverðsviðmiðun

Grein 1.29.1 í kjarasamningi SFS og SSÍ og sambærileg grein í samningi ASA og VerkVest orðist þannig vegna breytinga á olíuverðsviðmiðun:

„Skiptaverð innanlands og á vinnsluskipum skv. olíuverðsviðmiðun:

  Frosinn botnfiskur Frosin rækja    
Innanlands               fob cif   fob cif Heimsmarkaðsver á gasolíu $ fob/tonn
80% 77,00% 71,50% 74,00% 68,50%             Lægra en 164,00 USD
79% 76,50% 71,00% 73,50% 68,00% 164,00 USD 184,99 USD
78% 76,00% 70,50% 73,00% 67,50% 185,00 USD 205,99 USD
77% 75,50% 70,00% 72,50% 67,00% 206,00 USD 226,99 USD
76% 75,00% 69,50% 72,00% 66,50% 227,00 USD 247,99 USD
75% 74,50% 69,00% 71,50% 66,00% 248,00 USD 268,99 USD
74% 74,00% 68,50% 71,00% 65,50% 269,00 USD 289,99 USD
73% 73,50% 68,00% 70,50% 65,00% 290,00 USD 310,99 USD
72% 73,00% 67,50% 70,00% 64,50% 311,00 USD 331,99 USD
71% 72,50% 67,00% 69,50% 64,00% 332,00 USD 352,99 USD
70% 72,00% 66,50% 69,00% 63,50% 353,00 USD og hærra

 

4.         Frystitogarar

Grein 5.22 í kjarasamningi SFS og SSÍ og sambærileg grein í samningi ASA og VerkVest orðist svo:

"Skiptakjör.

                 30,5% miðað við 20 menn

                 31,0% miðað við 21 mann

                 31,5% miðað við 22 - 24 menn

                 32,0% miðað við 25 menn

                 32,5% miðað við 26 menn

                 33,0% miðað við 27 menn

Ef færri menn eru um borð en að ofan greinir skal skiptaprósentan lækka um 0,8 fyrir hvern mann sem á vantar.

Fyrir hvern mann sem er um borð umfram 27, skal skiptaprósentan hækka um 0,1%.

Fyrir frystitogara þar sem fjöldi í áhöfn hefur á tímabilinu 1.4.2000 – 1.4.2001 að jafnaði verið undir 20 verða ný viðmiðunarmörk vegna skiptingar milli áhafnar og útgerðar 18 menn. Skiptaprósentan á þessum skipum skal vera 30,5% miðað við 18-20 menn.“

Við grein 5.24 í kjarasamningi SFS og SSÍ og VerkVest bætist ný málsgrein við sem verður 2. mgr. og orðist svo:

„Á frystitogara með 30 eða fleiri í áhöfn og fleiri en eina flökunarvél skulu umsjónarmenn fiskvinnsluvéla að öllu jöfnu vera 4 og skal hver fyrir sig hafa 1 1/16 hásetahlut fyrir það starf. Sé um það samkomulag milli áhafnar og útgerða er heimilt að umsjónarmenn fiskvinnsluvéla séu tveir og skal þá hvor fyrir sig hafa 1 1/8 háestahlut.“

Grein 5.31 í kjarasamningi SFS og SSÍ og VerkVest orðist svo:

„Séu 25 menn eða færri í áhöfn skal háseti aðstoða matsvein 2½ klst. á sólarhring eftir óskum matsveins. Sú aðstoð skal fara fram á vinnuvakt hásetans.

Séu 26 menn í áhöfn eða fleiri skal vera aðstoðarmaður matsveins, og telst hann ekki til eiginlegrar skipshafnar við ákvörðun á mannafjölda og skiptaprósentu. Aðstoðarmaðurinn skal hafa föst mánaðarlaun skv. kaupskrá aðila, sem greiðist af útgerð skipsins, óháð hlutaskiptum annarra skipverja. Vinnutími hans skal vera 10 klst. á sólarhring á tímabilinu frá kl. 08:30 til kl. 22:00 eftir nánari ákvörðun matsveinsins. Sé aðstoðarmaður ekki um borð skal matsveinn fá laun aðstoðarmannsins til viðbótar sínum aflahlut. Útgerðarmaður skal hafa samráð við matsveininn, ef gera þarf lagfæringar í eldhúsi vegna fjölgunar í áhöfn skipsins.“

 

5.         Ný skip

Við bætist ný málsgrein í lok gr. 1.39.2:

Að sjö árum liðnum frá undirritun samnings þessa eða frá 1. desember 2023, verður ákvæði þetta tímabundið. Í sjö ár frá 1. desember 2023 skal þeim skipum sem fyrst verða tekin í notkun heimilt að nýta ákvæði þetta, að uppfylltum skilyrðum þess, en þó aldrei lengur en til 1. desember 2030 þegar ákvæðið fellur úr gildi.

 

6.         Hlífðarfatapeningar

Hlífðarfatapeningar skipverja á mánuði skulu vera sem hér segir skv. gr. 1.07:

Hlífðarfatapeningar undirmanna                                        kr. 11.400,-    á mánuði

Hlífðarfatapeningar vélstjóra og vélavarða                         kr. 9.700,-     á mánuði

Hlífðarfatapeningar dekkmanna á frystiskipum                 kr. 14.900,-   á mánuði

Útgerð skal hafa val um hvort að hún sjái skipverjum fyrir viðurkenndum hlífðarfatnaði sem verði eign útgerðar, en í umsjón skipverja. Útvegi útgerð hlífðarfatnað, þá fellur greiðsla hlífðarfatapeninga niður.

 

7. Orlof

Við grein 1.15 bætist við ný málsgrein:

Skipverji sem öðlast hefur aukinn orlofsrétt hjá sama vinnuveitanda eða á sama skipi öðlast hann að nýju eftir 3 ár hjá nýjum vinnuveitanda, enda hafi rétturinn verið staðreyndur af vinnuveitanda.

 

8. Helgar- og hafnarfrí     

Ný málsgrein í lok gr. 2.13:

Útgerð og áhöfn er heimilt að semja um að frí á föstudaginn langa og páskadag komi til lengingar á sjómannadagsfríi.

Breytt málsgrein í lok gr. 5.05:

Á föstudaginn langa, páskadag og sjómannadaginn skal ekki róið eða verið á sjó. Þetta ákvæði gildir ekki gagnvart togskipum 39 metrar eða lengri, og þegar skip er á veiðum fyrir erlendan markað. Útgerð og áhöfn á togskipum 39 metrum eða styttri er engu að síður heimilt að semja um að frí á föstudaginn langa og páskadag komi til lengingar á sjómannadagsfríi.

Ný málsgrein í lok 8.03, humarveiðar:

Heimilt er SFS vegna einstakra útgerða og stéttarfélögum viðkomandi skipverja að semja um að hafnarfrí verði tekin í frítúrum þannig að skipið stoppi ekki umfram þann tíma sem tekur að landa afla og búa skipið undir næstu veiðiferð. Í slíkum samningi skal kveðið á um að tekið verði upp skiptimannakerfi þannig að hver skipverji vinni að jafnaði 22 daga í hverjum mánuði, en eigi frí aðra daga mánaðarins. Komi til þess að ekki fiskist fyrir kauptryggingu innan mánaðar skal greiða hverjum skipverja kauptryggingu miðað við fullan mánuð enda hafi viðveruskylda skipverjans verið 22 dagar í mánuðinum. Heimilt er skipverjum í samráði við útgerð að ákveða jafnaðarlaunakerfi samhliða því að slíkt skiptimannakerfi er tekið upp.

  1. Breyting á grein 1.43

Brjóti útgerð gegn samningi þessum skal viðkomandi stéttarfélag senda hlutaðeigandi útgerð skriflega athugasemd, þar sem meintu broti gegn tilgreindu ákvæði kjarasamnings er lýst og afstaða stéttarfélags rökstudd. Skal þá veita útgerð hæfilegan frest til athugasemda. Brot gegn samningi varða sektum, allt að kr. 454.972. Sektarfjárhæð skal renna í félagssjóð viðkomandi stéttarfélags. Sé um verkfallsbrot að ræða getur hlutaðeigandi stéttarfélag sektað útgerð um framangreinda fjárhæð án viðvörunar. Sektarupphæð skal hækka í hlutfalli við kaupgjaldsákvæði samningsins.

  1. Kauptrygging, gr. 1.04

Lokamálsgrein gr. 1.04 verður breytt og orðist eftirleiðis:

Skipverji skal fá greidda kauptryggingu mánaðarlega að frádregnum fæðiskostnaði að þeim hluta, sem skipverja ber að greiða sjálfur, sbr. samkomulag um greiðslu upp í fæðiskostnað. Heimilt er skipverja að semja um annað fyrirkomulag.

  1. Sérsamningar

Ný málsgrein bætist við gr. 1.42:

Samningar sem gerðir eru á milli áhafnar og útgerðar gilda jafnt um þá skipverja sem eru við störf þegar samningur er samþykktur og þá sem síðar ráðast til starfa, enda hafi þeim verið kynnt efni þeirra við ráðningu.                                                                             

  1. Slysa- og veikindabætur skipverja gr. 1.21

Varðandi skipverja sem eru í skiptimannakerfum skal miða við þá grunnreglu vinnuréttar að skipverji skuli ekki vera betur settur fjárhagslega vegna óvinnufærni en hann hefði annars verið óforfallaður. Af því leiðir að ekki eru greidd laun vegna óvinnufærni í fríi skipverja.

  1. Sala aflans, gr. 1.28

  1. Almennt

    Útgerðarmaður hefur með höndum sölu aflans og hefur til þess umboð áhafnar að því er aflahlut hennar varðar. Hann skal tryggja skipverjum hæsta gangverð fyrir fiskinn, þó aldrei lægra en útgerðarmaður fær, þar með talin hrogn, lifur og bein. Ekki er heimilt að draga frá heildarverðmæti afla kostnað vegna kaupa á veiðiheimildum, sbr. 1. gr. laga nr. 24/1986, sbr 10. gr. laga nr. 79/1994 um breytingu á lögum nr. 24/1986 um skiptaverðmæti og greiðslumiðlun með síðari breytingum.

    Eftirfarandi ákvæði eiga ekki við í þeim tilvikum, þegar afli er seldur á innlendum eða erlendum uppboðsmarkaði.

    Útgerðarmaður skal hafa samráð við fulltrúa, sem kjörinn er af áhöfn í einfaldri kosningu, um áformaða sölu aflans fyrir a.m.k. mánuð í senn, og gera honum grein fyrir fyrirliggjandi upplýsingum um sölu og fiskverð. Tilkynna ber útgerð um hver sé kosinn trúnaðarmaður skipverja hverju sinni. Trúnaðarmaður skipverja skal hafa aðgang að samningum, reikningum og öðrum gögnum sem liggja til grundvallar verði einstakra fisktegunda, óski hann sérstaklega eftir því.

    Við upphaf vertíðar í loðnu, kolmunna, makríl og síld, skulu fulltrúar útgerða halda fund með fulltrúum sjómanna sem eru í úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna og starfsmönnum Verðlagsstofu skiptaverðs.

    Útgerðarmaður og áhöfn skulu gera sín í milli samning um fiskverð, þegar útgerð selur afla til eigin vinnslu, þ.e.a.s. í viðskiptum milli skyldra aðila. Til að slíkur samningur öðlist gildi, skal hann staðfestur í leynilegri atkvæðagreiðslu áhafnar og að því loknu undirritaður af fulltrúum áhafnar og útgerðar. Samingurinn skal vera í stöðluðu formi, þar sem fram komi m.a. verð einstakra fisktegunda, stærð, gæði, markaðs- og gengisviðmið og áætluð ráðstöfun, gildistími og uppsagnarákvæði o.s.frv.

    Telji meirihluti áhafnar að samningur um fiskverð sé í andstöðu við kjarasamning þennan, skal leita úrskurðar úrskurðarnefndar sjómanna og útvegsmanna. Með skyldum aðilum er átt við að útgerð og vinnsla séu í ráðandi eigu sömu aðila.

  2. Verðlagsstofa skiptaverðs og úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna

    Samkvæmt lögum nr. 13/1998 hefur Verðlagsstofa skiptaverðs það hlutverk að fylgjast með fiskverði og uppgjöri á aflahlut sjómanna og stuðla að réttu og eðlilegu uppgjöri á aflahlut. Við reglulega upplýsingagjöf til Verðlagsstofu vegna þessa skal styðjast við staðlað form sem úrskurðarnefnd sjómanna og útvegsmanna hefur samþykkt.

    Verðlagsstofa skiptaverðs annast rannsókn einstakra mála. Óski Verðlagsstofa skiptaverðs eftir gögnum frá aðilum, sbr. 1. mgr. 5. gr. laga nr. 13/1998, munu aðilar leggja sig fram um að veita allar þær upplýsingar sem óskað er eftir, eins fljótt og kostur er.

    Úrskurðarnefndin er skipuð þremur fulltrúum frá hvorum aðila og oddamanni sem skipaður er af sjávarútvegsráðherra að höfðu samráði við samningsaðila. Nefndin skal láta í té rökstutt álit á því hvort tillaga að fiskverði víki frá því sem algengast er við sambærilega ráðstöfun aflans. Skal þá taka tillit til fiskverðs í nærliggjandi byggðarlögum fyrir sambærilegan fisk að stærð og gæðum svo og horfa á þróun afurðaverðs og þá m.a. styðjast við tiltækar upplýsingar um fiskverð sem unnar eru fyrir samningsaðila af Verðlagsstofu skiptaverðs. Náist ekki samkomulag milli fulltrúa samtaka sjómanna og útvegsmanna í úrskurðarnefndinni innan 14 daga frá því mál er lagt fyrir hana, skal kveðinn upp úrskurður innan 7 daga og gildir hann þá frá því nefndinni barst málið til úrlausnar. Samkomulag eða úrskurður nefndarinnar skal gilda í allt að 3 mánuði eftir nánari ákvörðun hennar. Samkomulag eða úrskurður nefndarinnar er bindandi fyrir aðila á gildistímanum og skal lúta almennum réttarfarsreglum um samningsbundna gerðardóma, sbr. lög nr. 53/1989.

  3. Ráðstöfun afla í skiptum milli óskyldra aðila

    Þegar afli er seldur milli óskyldra aðila, skal skipt úr því verði sem fyrir aflann fæst hverju sinni, sbr. 1 mgr. I. kafla. Ef afli er seldur beint milli óskyldra aðila án milligöngu innlendra eða erlendra fiskmarkaða, getur áhöfn krafist samnings um uppgjörsverð fyrir þann afla.

Kjósi áhöfn að kalla eftir slíkum samningi, skal það gert með minnst fimm sólarhringa fyrirvara og skal samningstími ekki vera lengri en þrír mánuðir. Náist ekki samkomulag um uppgjörsverð milli meirihluta áhafnar og útgerðar, skal vísa málinu til úrskurðar nefndar, skv. II. kafla, og skal þá taka tillit til heildarráðstöfunar aflans. Nefndin skal flýta störfum eins og kostur er og náist ekki samkomulag innan sjö sólarhringa skal kveðinn upp úrskurður innan fjögurra sólarhringa. Fiskverð skv. þessu skal gilda frá því úrskurður fellur, nema samkomulag sé um annað.

  1. Markmið um fiskverð í viðskiptum milli skyldra aðila

    Miða skal við það markmið að fiskverð miðist að jafnaði við 80% af vegnu meðalverði á grundvelli magns síðastliðinna þriggja mánaða á innlendum fiskmarkaði, að frádregnum 5% kostnaði (skilaverð markaðar). Við útreikning á skilaverði markaðar skal að hámarki reikna 3% undirmálsþorsk í meðalverð hvers mánaðar.[1]

    Verðlagsstofa skiptaverðs skal setja fram lýsingu á sambandi milli þyngdar á fiski og verðs á hvert kíló. Í þessu sambandi skal Verðlagsstofa setja fram lýsingu á a.m.k. slægðum og óslægðum þorski, slægðri og óslægðri ýsu og karfa. Skal þetta samband þyngdar og verðs haft til hliðsjónar til að ná þeim samningsmarkmiðum sem lýst er hér á eftir.

    Verð á ufsa skal taka breytingum í samræmi við breytingar á afurðaverði samkvæmt upplýsingum frá Hagstofu Íslands

    Verðlagsstofa skiptaverðs annast alla nánari útreikninga og framsetningu og sker úr hugsanlegum ágreiningi sem upp kann að koma um túlkun á efnisatriðum.

    Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi skal með þátttöku sinni í úrskurðarnefnd skv. lögum nr. 13/1998 um Verðlagsstofu skiptaverðs o.fl. beita sér fyrir því, ef á þarf að halda, að ofangreind markmið náist.

  1. Tímabundin breyting skiptaprósentu

Samningsaðilar eru sammála um að framkvæma athugun á mönnun og hvíldartíma í íslenska fiskiskipaflotanum. Lögð skal áhersla á að setja athugun á uppsjávarskipum í forgang og kynna samningsaðilum niðurstöðu þeirrar könnunar, enda þótt að athugun standi enn yfir vegna annarra fiskiskipaflokka.

Ákveði útgerð að hafa átta skipverja um borð á uppsjávarskipi í stað níu, þ.e. samkvæmt greinum 6.02, 7.02 og 11.01, þá skal hlutur skipverja af skiptaverðmæti skipsins vera tímabundið 21,35%, að hámarki í 12 mánuði frá undirritun samnings þessa. Að þeim tíma liðnum skal þessi tímabundna breyting falla niður og hlutur skipverja af skiptaverðmæti verður aftur 20,8%.

Þetta frávik er ekki fordæmisgefandi fyrir mönnun eða hvíldartíma um borð á uppsjávarskipum.

16.      Samningsforsendur.

Geri nefnd sú sem fjallar um forsendur kjarasamninga á almennum vinnumarkaði breytingar á þeim samningi vegna breyttra samningsforsendna eru samningsaðilar sammála um að gera samsvarandi breytingar á kauptryggingu og launaliðum samningsins. Komist nefndin ekki að samkomulagi skulu aðilar endurskoða launalið samningsins.

  1. Gildistími

Með þeim breytingum sem hér eru gerðar framlengist kjarasamningur aðila til 31. desember 2018 og rennur þá úr gildi án uppsagnar.

 

Reykjavík 14. nóvember 2016

Með fyrirvara um samþykki stjórnar SFS, aðildarfélaga Sjómannasambands Íslands og Verkalýðsfélags Vestfirðinga,

f.h. Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi                   f.h.

og Samtaka atvinnulífsins                                      Sjómannasambands Íslands

                                                                                   f.h.

                                                                                   Verkalýðsfélag Vestfirðinga

 

  1. 1.    Bókun um fæðispeninga sjómanna

Aðilar eru sammála um að skoða lög og reglur sem gilda um dagpeninga og það skattalega hagræði sem þeir gætu veitt. Miða skal við að skipulagsbreyting þessi leiði ekki til kostnaðarauka fyrir útgerðina.

  1. 2.    Bókun um athugun á mönnun og hvíldartíma um borð í íslenska fiskiskipaflotanum.

Aðilar eru sammála um að framkvæma athugun á mönnun og hvíldartíma um borð í íslenska fiskiskipaflotanum. Grunnur þessarar athugunar byggir gildandi ákvæðum sjómannalaga nr. 35/1985, og reglugerð nr. 975/2004 um vinnu- og hvíldartíma skipverja á íslenskum fiskiskipum. Lögð skal áhersla á að setja athugun á uppsjávarskipum og ísfisktogurum í forgang og kynna samningsaðilum niðurstöðu þeirrar könnunar, enda þótt að athugun standi enn yfir vegna annarra fiskiskipaflokka.

Skipa skal starfshóp til að gera þessa könnun, sem skal skipaður þremur fulltrúum tilnefndum af Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi og þremur fulltrúum tilnefndum sameiginlega af Sjómannasambandi Íslands, Farmanna- og fiskimannasambandi Íslands og VM-Félagi vélstjóra og málmtæknimanna. Aðilar eru sammála um að skipa sameiginlega mann til að sinna verkstjórn þessa verkefnis, en hann skal hafa þekkingu á þessu sviði. Aðilar munu óska sameiginlega eftir aðkomu Samgöngustofu að þessari vinnu.

Starfshópurinn skal hefja störf við undirritun kjarasamnings þessa og miða við að hafa lokið störfum sínum fyrir lok árs 2017.                      

  1. 3.    Bókun um yfirferð kjarasamningsins

Aðilar eru sammála um að á samningstímanum verði kjarasamningar yfirfarnir í heild sinni. Orðalag einstakra greina fært til nútímans, greinar felldar brott ef ástæða er til og greinum bætt inn ef þörf er á til að endurspegla betur þróun og breytt vinnubrögð útgerðar fiskiskipa og starfa fiskimanna.

Eftirfarandi verkefni skulu unnin á samningstímanum og miðað er við að þeim verði lokið eins og segir við hvern lið:

  • Stefnt skuli að því að færa stærðarviðmiðanir fiskiskipa úr brúttórúmlestum í brúttótonn eða lengd í metrum -  fyrir lok árs 2017. 

  • Skoða kafla einstakra veiðigreina, þeir felldir brott eða sameinaðir öðrum veiðigreinum ef samkomulag næst um það - fyrir lok árs 2017.

  • Skoða hver verður þróunin á frystiskipum og hvernig rekstrargrundvöllur þeirra verður til framtíðar litið, en mikilvægt er að farið sé í vinnu við að greina framtíðarhorfur og möguleika þessa skipaflokks.

  • Ræða skal rekstrarumhverfi sjávarútvegs og framtíðarhorfur í alþjóðlegri samkeppni.

  • Skoða framtíðargreiðsluhlutfall í lífeyrissjóði - fyrir lok samningstíma

  • Skoða þátttöku sjómanna í greiðslu iðgjalda slysatrygginga - fyrir lok samningstíma.

  • Kanna fyrirkomulag hafnar- og helgarfría með hliðsjón af þróun útgerðarhátta - fyrir lok samningstíma.

  • Skoða skal hvernig fjarskiptamál eru um borð í skipum sem sigla út fyrir dreifikerfi fjarskiptafyrirtækja, en tryggja verður að rekstur skips og öryggi þess og áhafnar sé alltaf í forgangi vegna notkunar fjarskiptabúnaðar.

  • Önnur atriði sem aðilar verða sammála um að skoða.

    Starfshópur aðila skal vinna að framkvæmd bókunarinnar. Starfshópurinn skal skipaður þremur frá SFS, þremur tilnefndum sameiginlega af FFSÍ, SSÍ, VM og VerkVest. Starfshópurinn skal halda utan um verkefnið í samráði við ríkissáttasemjara. Hann skal skipaður um leið og kjarasamningur þessi tekur gildi. Starfshópurinn getur óskað sameiginlega eftir aðkomu sérfræðinga eða annarra aðila sem hafa þekkingu á viðkomandi sviðum.

    Starfshópurinn skal hefja störf frá gildistöku kjarasamnings þessa og miða við að hafa lokið störfum sínum innan sex mánaða fyrir lok samningstíma þessa kjarasamnings.

 


[1][1] Hér er átt við slægðan þorsk. Úrskurðarnefnd skal vinna að sambærilegri nálgun fyrir óslægðan þorsk, slægða og óslægða ýsu og karfa.

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi