Reynslunni ríkari göngum við til framtíðar
AFL Starfsgreinafélag varð til 28. apríl 2007 með samruna þriggja félaga, Vökuls Stéttarfélags, Verkalýðsfélags Reyðararðar og AFLs Starfsgreinafélags Austurlands. Bæði Vökull og AFL Starfsgreinafélag Austurlands höfðu áður orðið til úr sameiningum minni félaga. Verkalýðs- barátta á Austurlandi á sér hins vegar sögu allt aftur til 1896 er fyrsta verkalýðsfélagið var stofnað á Seyðisfirði. Félagssvæði AFLs nær allt frá Skeiðará í suðri að Þórshöfn í norðri. Stærð félagsins fylgja kostir og ókostir. Félagið hefur reynt með ýmsu móti að vinna gegn ókostunum með öflugu starfi trúnaðarmanna, rekstri þjónustuskrifstofa á sjö stöðum á félagssvæðinu og með vinnustaðaheimsóknum. Styrkleika sína hefur félagið reynt að virkja félagsmönnum til hagsbóta. Við munum fagna 10 ára afmæli AFLs með margvís- legum hætti. Meðal annars verður mikið lagt í ársfund trúnaðarmanna sem haldinn verður í mars og aðalfundur félagsins verður með sérstakri afmælisdag- skrá. Þá ætlum við að auka samtal okkar við ungt fólk á félagssvæðinu með ýmsum hætti. Við viljum líta til framtíðar því þangað stefnum við.