Kjarasamningur í fiskimjölsverksmiðjum samþykktur
Lokið er talningu í atkvæðagreiðslu meðal félagsmanna AFLs og Drífanda sem starfa í fiskimjölsverksmiðjum um nýgerðan kjarasamning.. Þátt í atkvæðagreiðslu tóku 76,7% eða 66 félagsmenn félaganna tveggja. Já sögðu 47 eða 77,3%, nei sögðu 15 eða 22,7%. Samningurinn telst því samþykktur og hefur Samtökum atvinnulífsins verið tilkynnt um úrslit. Samningurinn gildir þar til í maí 2019.