Saga Alþýðusambandsins
Saga Alþýðusambandsins er komin út á rafrænu formi og er full ástæða til að hvetja fólk til að skoða. Höfundur verksins er Sumarliði Ísleifsson, málmsmiður og sagnfræðingur.
Verkið er í tveimur bindum og rekur sögu verkalýðshreyfingarinnar á Íslandi í máli og myndum og er mikilvæg heimild um lífskjör og lífsbaráttu alþýðunnar í eitt hundrað ár. Verkið hefur verið búið sérstaklega til útgáfu á netinu.