AFL samþykkir kjarasamning verkafólks
AFL Starfsgreinafélag hefur staðfest nýgerðan kjarasamning SGS við Samtök Atvinnulífsins. Kjörsókn félagsins var 22,45% og já sögðu 79,11%, nei sögðu 15,47% og 5,42% skiluðu auðu. Samningurinn telst því samþykktur.
Öll önnur aðildarfélög SGS staðfestu samninginn einnig með allt frá 50% já og upp í um 90%. Kjörsókn var frá 7% - 30%.
Nánar er fjallað um kosningarnar á heimasíðu SGS, www.sgs.is