AFL samþykkir kjarasamning verslunarfólks
AFL staðfesti í atkvæðagreiðslu kjarasamning Landssambands Íslenskra Verslunarmanna við Samtök Atvinnulífsins. Kjörsókn var 28,33%. Já sögðu 80%, nei 10% og auðu skiluðu 10%.
Önnur félög LÍV samþykktu einnig kjarasamninginn með allt frá 80% já og að 100%. Kjörsókn annarra félaga var frá 10% og að 60%.