Aðalfundur AFLs 2020
Mynd frá aðalfundi AFLs 2016
Boðað er til aðalfundar AFLs Starfsgreinafélags mánudaginn 28. september 2020, klukkan 17:00 í félagsheimilinu Skrúði á Fáskrúðsfirði. Boðið verður upp á léttan kvöldverð að fundi loknum.
Dagskrá:
- Skýrsla stjórnar fyrir liðið starfsár
- Reikningar félagsins kynntir bornir upp til samþykktar
- Lagabreytingar
- Breytingar á reglugerð sjúkrasjóðs
- Kjör stjórnar, varastjórnar og trúnaðarráðs
- Kjör félagslegra skoðunarmanna
- Kjör til annarra stjórna og ráða félagsins sbr. lög þess
- Ákvörðun félagsgjalds
- Önnur mál
- Laun stjórnar
- Kosning fulltrúaráðs Stapa
- Framlag í menntasjóð IMA
Af sóttvarnarástæðum óskum við eftir að félagsmenn tilkynni um þátttöku á fundinum fyrirfram svo unnt sé að gera ráðstafanir vegna fjöldatakmarkana. Tilkynnið þátttöku á næstu skrifstofu eða með pósti á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it..
Ferðir verða skipulagðar af skrifstofum félagsins – hafið samband við næstu skrifstofu.
Ársreikningar félagsins, tillögur að laga og reglugerðarbreytingum liggja frammi á skrifstofum félagsins.
AFL Starfsgreinafélag