Ennþá lausar nokkrar vikur í orlofshúsum
Nokkrar vikur í orlofshúsum AFLs gengu af við úthlutun. Aðallega er um að ræða hús á Einarsstöðum á Völlum og svo Glaðheima við Blönduós. Um er að ræða vikur í júní og í ágúst. Opnað hefur verið fyrir bókanir í þessi tímabil á orlofsvef félagsins og getur því hvaða félagsmaður sem er bókað þessar vikur og gildir bara "fyrstur kemur - fyrstur fær".