Hefðbundnar endurgreiðslureglur orlofshúsa og íbúða
Síðustu vikur hefur verið vikið frá hefðbundnum endurgreiðslureglum íbúða vegna Covid 19. Þannig hafa íbúðir verið endurgreiddar þó svo að afbókun hafi borist nánast á síðustu stundu.
Með hliðsjón af því ástandi sem nú ríki - hefur verið horfið til endurgreiðslureglna félagsins og því er "Covid" ekki haldbær skýring á afbókun íbúðar lengur. Ef íbúða- eða orlofshúsaleiga er afbókuð innan við 10 dögum áður en leiga hefst - er endurgreiðsla háð því að eignin leigist út aftur.
Ath. staðfestingagjald er aldrei endurgreitt.