AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Stuðningsyfirlýsing við Eflingu

ASÍ ungStjórn ASÍ UNG lýsir yfir fullum stuðning við Eflingu í baráttu félagsins vegna uppsagnartrúnaðarmanns hjá Icelandair á Reykjavíkurflugvelli. ASÍ UNG telur að með þessari framgöngu Icelandair og Samtaka Atvinnulífsins (SA), sem samkvæmt Eflingu hafa staðið með uppsögninni, er verið að gera alvarlega aðför að uppsagnarvernd trúnaðarmanna á vinnustöðum en sú vernd er grundvallarstoð innan stéttarfélaga til að viðhalda vinnufrið í störfum sínum í þágu félagsmanna.

Skýrt er tekið fram í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur (80/1938) að trúnaðarmenn skuli eigi gjalda fyrir störf sín í þágu félagsins eða vera í hættu á að sæta uppsögn vegna slíkra trúnaðarstarfa: Stjórn ASÍ UNG fordæmir þessar aðgerðir Icelandair og afstöðu SA, ekki er hægt að túlka þær á annan hátt en sem aðför að réttindum íslenskra launamanna til að sinna félagsstörfum.

Að lokum skorar ASÍ UNG á Icelandair að draga uppsögnina til baka og gangast við mistökum sínum.

Fyrir hönd stjórnar ASÍ UNG

Gundega Jaunlinina

Formaður ASÍ UNG

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi