AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Opið fyrir bókanir um jól og áramót

Asatun 42 Akureyri

Búið er að opna fyrir umsóknir um jól og áramót.  Sótt er um á "mínum síðum" á www.asa.is og er íbúðum úthlutað nánast jafnóðum og umsóknir koma inn.  Úthlutað er í þeirri röð sem umsóknir koma og gildir því "fyrstu kemur fyrstur fær".  Þessi háttur er hafður á þar sem við hefðbundna úthlutun sóttu jafnan miklu fleiri um íbúðir en síðan staðfestu úthlutun - þar sem margir úr sömu fjölskyldu sóttu jafnan um.  Það varð síðan til þess að margir þeirra sem ekki fengu úthlutað í fyrstu umferð gerðu aðrar ráðstafanir eða hættu við áformaða ferð - en á síðustu dögum bárust síðan afbókanir.

Í fyrra var þetta verklag viðhaft og náðist að mæta óskum langflestra þeirra sem óskuðu eftir orlofsdvöl um jól eða áramót.  Sama fyrirkomulag er bæði á íbúðum og orlofshúsum.

Þeir sem fá úthlutað íbúð skv. þessu verða síðan að greiða staðfestingargjald sem er kr. 5.000 og er óendurkræft og er ekki endurgreitt þó að bókun sé felld niður án tillits til forsenda niðurfellingar.

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi