Laun í vinnuskólum
AFL hefur gert samanburð á launum hjá nemum í vinnuskólum stærstu sveitarfélaganna á félagssvæðinu. Upplýsingar eru fegnar hjá launadeildum nema hjá Múlaþingi, þar teknar af heimasíðu sveitarfélagsins
. | Fjarðabyggð | Hornafjördur | Múlaþing | Vopnafjörður |
Fæðingarár | kr. klst | kr. klst | kr. klst | kr. klst |
2010 | . | 858 kr. | 798 kr. | . |
2009 | 1.064,06 kr. | 978 kr. | 1.197 kr. | 1.583,99 kr. |
2008 | 1.330,08 kr. | 1.223 kr. | 1.463 kr. | 1.905,70 kr. |
2007 | 1.862,11 kr. | 1.467 kr. | 1.729 kr. | 2.227,41 kr. |
Ofan á útgefna taxta er greitt hefðbundið orlof 13,04%
Þar sem vinnuskólar eru sambland af námi, vinnu og leik eru kjör þar undanþegin gildissviði kjarasamninga og ákveða viðkomandi sveitarstjórnir því launin, sjá nánar
Hér er hrópandi launamunur á milli nemenda eftir því hvar á svæðinu þeir búa og starfa.
Sá launamunur sem þarna raungerist væri ekki til staðar fengju stéttarfélögin að semja um laun fyrir nemendur vinnuskóla eins og fyrir launafólk.