AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Eru þínar upplýsingar réttar!

Það getur skipt miklu máli fyrir verkalýðsfélög að vita á hyfirlitvaða starfsstöðvum félagsmenn vinna.  Bæði eru fyrirtæki og sveitarfélög,  orðin stærri en áður var og mörg fyrirtæki hafa margar starfsstöðvar.


Réttur til að hafa trúnaðarmann á vinnustað er mikilvægur réttur launafólks og sá réttur byggir á fjölda starfsmanna á vinnustaðnum eða starfsstöðinni.  Þegar félagið fær skilagrein frá stóru sveitarfélagi – eru tugir eða hundruðir nafna á skilagreininni en engar frekari upplýsingar.

Því er það við t.d. afgreiðslu kjarasamninga, kosninga um verkföll og aðrar afgreiðslur félagsins sem leggja þarf í mikla vinnu við að vinna kjörskrá og alltaf hætta á að einhverjir verði utan kjörskrár, sem eiga að vera þar.  Þegar kemur að trúnaðarmannakosningum – er ljóst að félagsmenn AFLs um allt félagssvæði eiga rétt á miklu fleiri trúnaðarmönnum en við höfum í dag.  Ein leið til að tryggja að sem flestar starfsstöðvar geti kosið sér trúnaðarmann – er að skrá sig á starfsstöðina.starfsstod

Félagið mun síðan fylgjast með hvaða starfsstöðvar hafa fleiri en 5 félagsmenn og gangast fyrir trúnaðarmannakosningum á þeim.

 

 

Á mínum síðum á www.asa.is er auðvelt að skrá starfsstöð og einnig að tilkynna um breytingu á starfsmannaflokk og jafnvel skrá starfsheiti.

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi