Átaki fagnað en................
og að AFL bauð Vinnumálastofnun samvinnu og hlutdeild í kostnaði við sérstakan vinnustaðafulltrúa á Austurlandi, þykir stjórn AFLs það skjóta skökku við að ekki er fyrirhugað neitt átak í þessum málum á félagssvæðinu af hálfu Vinnumálastofnunar.
Eftirfarandi ályktun var gerð um málið.:
Stjórn AFLs Starfsgreinafélags lýsir ánægju með boðað átak Vinnumálastofnunar gegn félagslegum undirboðum sem hefjast eiga nú í vikunni. Hins vegar krefst stjórnin þess að hluta átaksins verði beint til Austurlands og minnt er á tilboð AFLs þess efnis frá 11. september 2007.
Félagið mun leita samstarfs við m.a. sveitarfélög til efla vinnustaðaeftirlit og ítrekar fyrri tilmæli sín til sveitarfélaga á Austurlandi að tryggja að þeir sem starfi hjá verktökum við opinberar framkvæmdir á vegum sveitarfélaganna, njóti umsamninna kjara og réttinda.