Aðgerðarhópur SGS kallaður saman
Aðgerðarhópur SGS - sem mun gera tillögur til stjórnar Starfsgreinasambandsins um aðgerðir til að knýja á um gerð kjarasamninga, hélt sinn fyrsta fund sl. mðvikudag og hefur verið boðaður ná nýju á fund á mánudagsmorguninn.
Hópurinn hittist á miðvikudag að loknum fundi aðalsamninganefndar Starfsgreinasambands Íslands, þar sem Kristján Gunnarsson, formaður sambandsins, fór yfir stöðu samningamála.
Aðalsamninganefnd SGS hefur verið boðuð til fundar að nýju á mánudag en í gær ræddi þriggja manna forystuhópur samninganefndarinnar, Kristján, Björn Snæbjörnsson, Einingu Iðju, og Hjördís Þóra, AFLi, við fulltrúa Samtaka Atvinnulífsins.
Á fundi samninganefndar mun aðgerðarhópur SGS leggja fram fyrstu drög að aðgerðum til að knýja á Samtök Atvinnulífsins um raunhæfar kjarabætur í komandi samningum.
Viðræður vegna sérmála ýmissa hópa SGS eru á lokastigi.