AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Brim dæmt til að greiða 3ja ára stéttarfélagsgjöld

Fyrirtækjum ber að draga stéttarfélagsgjald af launum starfsmanna og skila til þess stéttarfélags sem samningsaðild á um viðkomandi starf og félagssvæði. Þetta má lesa úr dómi er féll í héraðsdómi Reykjavíkru 29. janúar sl.

Þetta gildir hvort heldur starfsmaðurinn er félagi verkalýðsfélagsins eða ekki því í kjarasamningi sem gerður hefur verið milli atvinnurekenda og verkalýðshreyfingarinnar er skýrt kveðið á um þessa skyldu. Því má bæta við að kjarasamningar verkalýðsfélaga eru í öllum tilfellum lágmarkskjarasamningar og tryggja öllum launþegur að lágmarki þau laun og önnur kjör er þar er um samið.

Samkvæmt dómnum sem kveðinn var upp í héraðsdómi Reykjavíkur var útgerðarfyrirtækið Brim dæmt til að greiða Félagi skiptstjórnarmanna ógreidd félagsgjöld vegna eins yfirmanna í 3 ár. Því geta kröfur sem þessar birst fyrirtækjum jafnvel fyrir mörg ár aftur í tímann og verður þeim þá ókleyft að innheimta af starfsmönnunum - enda innheimta og skil gjalda á ábyrgð fyrirtækjanna.´

Sjá dóminn í heild beint á pdf

 

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi