AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Póstatkvæðagreiðsla - talið 10. mars

Samninganefnd AFLs ákvað á fundi sínum í gærkvöld að það færi fram allsherjaratkvæðagreiðsla um nýgerða kjarasamnigna með póstatkvæðagreiðslu. Atkvæðaseðlar verða settir í póst á morgun eða mánudag en atkvæði verða talin 10. mars nk.

Talsverð vinna hefur verið við að fullvinna kjörskrá félagsmanna AFLs og stafar það af því að nú um áramót runnu félagaskrár þriggja stofnfélaga AFLs saman í eina og eins vegna þeirra mikla sviptinga sem verið hafa á vinnumarkaði á svæðinu síðustu ár.

Í dag var verið að leggja lokahönd á kjörskrá og allir þeir sem eru atkvæðisbærir samkvæmt lögum félagsins fá á næstu dögum sendann kjörseðil. Atkvæði verða talin 10. mars og þeir sem ekki hafa fengið kjörseðil í lok næstu viku geta haft samband við næstu skrifstofu félagsins og kært sig inn á kjörskrá - uppfylli þeir reglur félagsins þar um. Upplýsingar verða settar á heimasíðu félagsins hvað þetta varðar á næstu dögum. 

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi