Bílstjórar á Austurlandi mótmæltu verðhækkunum á olíu í dag með hægakeyrslu um Egilsstaði. Í gær efndu bílstjórar á Suðausturlandi til aðgerða við Hornarfjarðarflugvöll.
Með aðgerðum bílstjóra á Egilsstöðum í dag urðu nokkrar tafir á umferð í snjókomunni.