Starfsendurhæfing Austurlands
Starfsendurhæfing Austurlands var formlega stofnuð 14. nóvember 2007 af 18 stofnaðilum á Austurlandi, þ.e. AFLi starfsgreinafélagi, Framhaldsskólanum í Austur Skaftafellssýslu, Heilbrigðisstofnun Austurlands, Heilbrigðisstofnun Suðausturlands, Menntaskólanum á Egilsstöðum, Samtökum sveitafélaga á Austurlandi, Verkmenntaskóla Austurlands, Verslunarmannafélagi Austurlands, Vinnumálastofnun Austurlands, Þekkingarneti Austurlands, Þróunarfélagi Austurlands, Stapa - lífeyrissjóði, og sveitarfélögunum Djúpavogshreppi, Fjarðabyggð, Fljótdalshéraði, Hornafirði, Seyðisfjarðarkaupstaður og Vopnafjarðarhrepp.
Tilgangur og markmið Starfsendurhæfingarinnar Austurlands er að aðstoða fólk sem lendir utan vinnumarkaðar um lengri eða skemmri tíma vegna t.d. sjúkdóma, félagslegra aðstæðna eða annarra hluta, og endurhæfa til vinnu/ og eða náms auka lífsgæði og endurnýja starfsþrek.
Lögð er áhersla á að endurhæfingin fari sem mest fram í heimabyggð þeirra sem hennar njóta og að allar stoðir nærsamfélagsins séu nýttar, s.s. heilbrigðiskerfið, mennta-og fræðslukerfið, félagsþjónusta, iðjuþjálfar og sjúkraþjálfarar og fleiri aðilar.
Starfsendurhæfing Austurlands heimasíða
Í undirbúningsstjórn fyrir stofnun Starfsendurhæfingar Austurlands sátu:
Sverrir Albertsson AFLi, formaður, Eyjólfur Guðmundsson framhaldsskólanum í Austur Skaftafellssýslu, Þórarinn Baldursson HSA, Helga Jónsdóttir Fjarðabyggð, Óðinn Gunnar Óðinsson Fljótsdalshéraði, Ólöf Guðmundsdóttir Vinnumálastofnun á Austurlandi.
Eftirfarandi aðilar voru stofnaðilar en fleiri lýstu áhuga fyrir því að slást í hópinn:
Björn Hafþór Guðmundsson |
Þorvaldur Jóhannsson |
Stefán Stefánsson Framkvæmdastjóri Þróunarfélags Austurlands |
Einar Rafn Haraldsson Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Austurlands |
Sverrir Albertsson Framkvæmdastjóri AFLs Starfsgreinafélags |
Eyjólfur Guðmundsson Skólameistari Framhaldsskóla Austur-Skaftafellssýslu |
Helga M. Steinsson Skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands |
Helgi Ómarsson Skólastjóri, Menntaskólanum Egilsstöðum |
Guðrún Júlia Jónsdóttir Framkvæmdastjóri Heilbrigðisstofnunar Suð-austurlands |
Kári Arnór Kárason Framkvæmdastjóri Stapa lífeyrissjóðs |
Kristín M. Björnsdóttir Formaður Verslunarmannafélags Austurlands |
Helga Jónsdóttir Bæjarstjóri Fjarðabyggð |
Soffía Lárusdóttir Framkvæmdastjóri Svæðisskrifst. málefna fatlaðra Austurl. |
Ólöf Guðmundsdóttir |
Þorsteinn Steinsson |
Hjalti Þór Vignisson Bæjarstjóri Hornafirði |
Ólafur Sigurðsson Bæjarstjóri Seyðisfirði |
Eiríkur B. Björgvinsson Bæjarstjóri Fljótsdalshéraði |
Tilhögun endurhæfingarinnar:
„Æskilegast er að endurhæfing hefjist eins fljótt og hægt er eftir að ljóst er að einstaklingur er að hverfa af vinnumarkaði vegna aðstæðna sem unnt er að vinna úr. Þannig gæti tilvísun til starfsendurhæfingar komið frá lækni, fulltrúum Svæðisvinnumiðlunar, félagsmálafulltrúum sveitarfélaga og/eða öðrum aðilum sem fólk leitar til í erfiðleikum.
Viðkomandi einstaklingur fer síðan í viðtal og mat endurhæfingarsérfræðings sem að lokum gerir heilstæða endurhæfingaráætlun með viðkomandi einstaklingi. Gerður er undirskrifaður samningur um þátttöku.
Endurhæfingin er sniðin fyrir hvern einstakling en getur t.d.verið fólgin í:
• Sjúkraþjálfun
• Iðjuþjálfun
• Námskeiðum
• Sjáflseflingu
• Hópefli
• Viðtölum og sálfræðilegri aðstoð
• Fjármálaráðgjöf
• Starfsþjálfun“
* (Úr undirbúningsskýrslu AFLs)