Verkalýðsfélög sameinast yfir úthöf
Eitt stærsta verkalýðsfélag heims er að verða til þessa dagana en United Steel Workers of America og Unite the Union of Great Britain skrifuðu á miðvikudag undir samkomulag um stofnun "Workers Uniting" með sameiningu þessara félaga.
Í hinu nýja verkalýðsfélagi sem kemur til með að hafa skrifstofur í Bandaríkjunum, Englandi, Írlandi og Kanada, eru um 3 milljónir félagsmanna en þessi verkalýðsfélög eiga bæði uppruna sinn í málmiðnaði.
Hið nýja félag hefur boðað sameinað átak hvar sem er í heiminum þar sem réttindi launafólks eru lítilsvirt og munu opna skrifstofur m.a. í Suður Ameríku, Austur Evrópu og Asíu.
Fulltrúar Workers Union í Ástralíu eru í viðræðum við nýstofnað félagið. AFL Starfsgreinafélag hefur átt samvinnu við bæði USW og Unite m.a. vegna málefna starfsmanna ALCOA á Íslandi.