Samningur um ákvæðisvinnu við línu og net.
Starfsgreinasambandið hefur, fyrir hönd aðildarfélagarfélaganna, gengið frá samningi við Landssamband smábátaeigenda um beitningu, uppstokkun og aðra línuvinnu svo og vinnu við netaafskurð og fellingu neta. Jafnframt eru inni í samningum ákvæði um fellingu grásleppuneta.
Samningurinn er, eins og aðrir samningar, samningur um lámarkskjör og er fyrsti samningur sem gerður er við Landssamband smábáteigendur á landsvísu. Í samningum er tekið á kauptryggingu þessara hópa, greiðslu hlífðarfatnaðar, desember-og orlofsuppbótar, ráðningasamninga svo fátt eitt sé nefnt. Samningurinn i heild sinni á pdf.