AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Mótmælum hækkun gjaldskrár

AFL Starfsgreinafélag hefur sent frá sér eftirfarandi tilkynningu í kjölfar hækkunar á gjaldskrá hitaveitu í Fjarðabyggð:
"Afl Starfsgreinafélag lýsir furðu sinni á þeirri ákvörðun bæjarráðs Fjarðabyggðar að hækka gjaldskrá hitaveitu um liðlega 20%. Ákvörðunin kemur ekki bara illa við íbúa sveitarfélagsins heldur er hún óheppileg  á þessum tíma  þegar mikil óvissa ríkir í efnahagsmálum þjóðarinnar, vextir  og verðbólga í hæstu hæðum og afkoma heimilanna erfið. 
AFL Starfsgreinafélag hvetur sveitarfélög á félagssvæði til að hækka ekki gjaldskrár vegna þjónustu sveitarfélaganna. Ennfremur hvetur AFL sveitarfélög til að gæta sérstaklega að hagsmunum barna og unglinga við þær aðstæður sem nú ríkja í þjóðfélaginu.
Afl Starfsgreinafélaga skorar á  bæjarráð  Fjarðarbyggðar, að endurskoða ákvörðun sína."

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi