Opið á Reyðarfirði
Erum búin að koma okkur fyrir í nýju húsnæði að Búðareyri 1. Stundum kallaður litli molinn. Gengið er inn að austanverðu. Þekkingarnet Austurlands og Starfsendurhæfing Austurlands verða einnig með skrifstofur í þessum hluta hússins. Verið er að leggja lokahöndina á námsvers- og fundarsali í syðri hluta neðri hæðarinnar. ÞNA og StarfA mun flytja sína starfsemi á Reyðarfirði í þann hluta á allra næstu dögum.