AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Forsetabréf ASÍ

Apríl fréttabréf ASÍ er komið út. Fréttabréfið er hér að neðan. 

Meðal efnis í fréttabréfi aprílmánaðar er forsetabréf þar sem m.a. er fjallað um mikilvægi trúverðugleika Íslands í endurreisnarferlinu. Einnig er fjallað um rökin fyrir því afhverju ASÍ telur rétt að fara í aðildarviðræður við ESB, rætt um greiðsluvanda heimilanna og bráðaaðgerðir gegn atvinnuleysi og að lokum er Genfarskólinn kynntur.

 

Fréttabréf - apríl 2009

 

2. apríl 2009

Forsetabréf

Gylfi Arnbjörnsson forseti ASÍ fjallar um mikilvægi trúverðugleika Íslands við endurreisn efnahagslífsins, Evrópumál og alþingiskosningarnar síðar í mánuðinum.

Lesa meira

 

2. apríl 2009

Hversvegna ESB?

Það er forgangsmál fyrir heimili og fyrirtæki að ná tökum á þróun gengis, vaxta og verðlags og koma á stöðugleika í efnahagslífinu. Alþýðusambandið telur að eina færa leiðin í þeim efnum sé að sækja um aðild að ESB og stefna að upptöku evru í framhaldinu. Með því móti sendum við skýr skilaboð um það hvert við stefnum og að hagstjórn næstu ára muni miða að því að koma hér á stöðugleika.

Lesa meira

 

2. apríl 2009

Greiðsluvandi heimila og bráðaaðgerðir gegn atvinnuleysi 

Á nýafstöðnum aukaársfundi ASÍ var fjallað um greiðsluvanda heimilanna, hvernig verja má störfin og leggja grunn að öflugu atvinnulíf til framtíðar. Sérstök áhersla var lögð á aðgerðir sem koma í veg fyrir að greiðslubyrði húsnæðislána vaxi fólki yfir höfuð. Útgangspunkturinn í slíkum aðgerðum á að vera, að sem flestum heimilum verði gert kleift að standa við skuldbindingar sínar þrátt fyrir tímabundna erfiðleika og að beina aðstoðinni til þeirra sem eru í mestri þörf. ASÍ hefur í samvinnu við stjórnvöld beitt sér fyrir úrræðum s.s. greiðslujöfnun verðtryggðra lána, frestun greiðslna, tímabundna frystingu eða lengingu lána.

Lesa meira

 

2. apríl 2009

Genfarskólinn - spennandi tækifæri

Genfarskólinn er norrænn lýðháskóli sem haldinn er samhliða Alþjóðavinnumálaþinginu í Genf og dregur nafn sitt af því. Aðild að Genfarskólanum eiga MFA-samböndin í Svíþjóð, Noregi, Danmörku, Finnlandi og Íslandi. Skólinn er ætlaður virkum félagsmönnum í stéttarfélögunum. Gert er ráð fyrir því að umsækjendur hafi áhuga á alþjóðamálum verkalýðshreyfingarinnar. Æskilegt er að þeir hafi sótt fræðslustarf verkalýðshreyfingarinnar og þekki til starfsemi stéttarfélaganna og samtaka þeirra hér á landi.

Lesa meira

 

 


Alþýðusamband Íslands * Sætúni 1, Reykjavík * Sími: 53 55 600 * Fax 53 55 601 *
www.asi.is

 

 

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi