Hjördís endurkjörin formaður
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir var endurkjörin formaður AFLs á aðalfundi félagsins, sem haldinn var á Vopnafirði sl. laugardag. Fundinn sóttu um 60 félagsmenn en færð og veður hamlaði nokkuð gegn fundarsókn. Hornfirðingar sem sóttu fundinn fóru heiman frá um kl. 9 um morguninn og voru komnir heim aftur um kl. 3 aðfaranótt sunnudags.
Þá voru þrír aðalmenn í stjórn kjörnir og fjórir varamenn í stjórn. Kosningu hlutu til aðalstjórnar Eyþór Guðmundsson, Sverrir Albertsson og Þröstur Bjarnason. Varamenn voru kjörnir Konráð Sveinsson, Bryndís Aradóttir, Snorri Hallgrímsson og Hanna Ingólfsdóttir.
Nánar verður greint frá aðalfundinum og kjöri í aðrar stjórnir og ráð svo og aðrar samþykktir fundarins í vikunni.