AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Aðalfundur

thumb_stapiÁrsfundur  Stapa lífeyrissjóðs verður haldinn  fimmtudaginn 28. maí n.k. í Hótel Reynihlíð Mývatnssveit og hefst kl. 14.00.  Ársfundurinn er opinn öllum sjóðfélögum með málfrelsi og tillögurétti.
Atkvæðisrétt hafa þeir einir sem kosnir hafa verið á fundinn sem fulltrúar þeirra aðildarfélaga, sem að sjóðnum standa (svokallað fulltrúaráð).  AFL á rétt á 19 fulltrúum og voru þeir kosnir á aðalfundi félagsins nú í maí.

Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf og eru drög að dagskrá eftirfarandi:
1. Setning ársfundar
2. Skýrsla stjórnar, kynning og afgreiðsla ársreiknings og tryggingafræðilegt mat
3. Fjárfestingastefna sjóðsins
4. Breytingar á samþykktum
5. Kosning stjórnar
6. Kosning löggilts endurskoðanda
7. Laun stjórnar
8. Önnur mál

Gögn vegna ársfundarins s.s.samþykktarbreytingar, er að finna á heimasíðu sjóðsins www.stapi.is

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi