Stöðugleikasáttmáli - Samninganefnd AFLs boðuð
Í dag var undirritaður kjarasamningur ASÍ og SA sem framlengir gildandi samninga fram undir áramót 2010. Ennfremur gerðu aðilar ásamt ríkisstjórninni og öðrum samböndum launafólks sáttmála sem stuðla á að enduruppbyggingu efnahagslífs eftir hrun frjálshyggjunnar.
Samninganefnd ASÍ fer með umboð aðildarfélaga til framlengingar samninga en hefur óskað afstöðu félaga til þess samnings sem gerður var i dag. Því hefur samninganefnd AFLs Starfsgreinafélags verið boðuð til fundar nk. mánudag kl. 18:30 í húsi félagsins að Búðareyri 1, Reyðarfirði.
Kjarasáttmáli ASÍ og SA juní 2009