Alvarleg mistök lögmanns Stapa lífeyrissjóðs
Stjórn AFLs Starfsgreinafélags mun halda símafund í hádeginu í dag til að ræða málefni Lífeyrissjóðsins Stapa, en fyrir mannleg mistök lögmannsskrifstofu sjóðsins láðist að lýsa fjögurra milljarða króna kröfu vegna nauðasamninga Straums banka.
Á fundinum mun fulltrúi AFLs í stjórn sjóðsins fara yfir málavexti. Sjá tilkynningu Stapa um málið: http://stapi.is/is/news/mistok_vegna_krofulysingar/