Formaðurinn kemur sér upp "hjáleigu"
Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir, formaður AFLs, stóð í stórræðum á laugardag en þá kom hún sér upp húsi á jörðinni Fljótsbakka í Eiðaþinghá, en hún er öllu jafna búsett á Hornafirði. Á myndinni má sjá formanninn með fríðum flokki sem kom húsinu á staðinn og á undirstöðurnar.
Það gekk ekki andskotalaust að koma húsinu á sinn stað en það kom í tveimur hlutum. Kranabíllinn sem lyfti hlutunum á sinn stað vegur 50 tonn og sökk í blautan jarðveginn.
En allt hafðist þetta að lokum.