AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Fádæma fúsk og gamlar aðferðir

Á stjórnarfundi AFLs Starfsgreinafélags, sem haldinn var á Neskaupstað í gærkvöldi, samþykkti stjórn félagsins eftirfarandi ályktun. Í henni eru útboð á þjónustu og uppsagnir á starfsfólki ríkisstofnana til þess eins að "einkavæða" störf þeirra, gagnrýnt.

"Stjórn AFLs Starfsgreinafélags lýsir áhyggjum af því að við sparnaðaraðgerðir í heilbrigðiskerfi virðist enn stuðst við gamlar og úr sér gengnar aðferðir frjálshyggjunnar.  Eru einkavæðing og útboð á þjónustu á spítölum svör ríkisstjórnarinnar  við núverandi aðstæðum?

Stjórnin lýsir furðu á því að stjórnvöld telji sig ná sparnaði með því að fela einkaaðilum rekstur mötuneytis Landsspítalans og um leið segi upp starfsfólki sem unnið hefur spítalanum af trúmennsku um langt árabil. Sparnaði annars staðar hefur verið náð m.a. með því að minnka starfshlutfall lægst launaða starfsfólki heilbrigðiskerfisins án þess að vinna minnki í raun og þannig eru byrðarnar settar á þá sem minnst mega við launaskerðingum.

AFL Starfsgreinafélag hvetur stjórnvöld til að kasta aðferðum frjálshyggjunnar og taka upp félagshyggju og mannvænar aðferðir við lausn á aðsteðjandi vanda.  Samfélagið allt krefst nýrra lausna og að snúið sé frá óheftri peningahyggju og markaðssjónarmiðum. Það er dapurt að heilbrigðisráðherra gangi á undan í einkavæðingu og uppsögnum starfsfólks til að bjóða út þjónustu.

Enn fremur lýsir félagið áhyggjum af framgangi stöðugleikasáttmálans og bendir á að atvinnulífið stefnir í stöðvun á næstu mánuðum verði ekki eitthvað að gert. Félagið ítrekar fyrri ályktanir sínar um að sátt verður að nást í málefnum skuldsettra heimila og það má ekki dragast mikið lengur.

AFL Starfsgreinafélag krefst þess að uppgjör bankahruns og rannsóknir  á meintum efnahagsbrotum verði fyrir opnum tjöldum og að þeir sem ábyrgð báru á fádæma fúski í eftirliti og vafasömum viðskiptaháttum, verði dregnir til ábyrgðar."

 
 

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi