AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Talsverður verðmunur á smurþjónustu á Austurlandi

smurningMikill verðmunur er á smurþjónustu fyrir bíla að því er fram kemur í verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði í samvinnu við AFL, hjá 9 þjónustuaðilum víðs vegar á Austurlandi mánudaginn 12. október sl. Munur á hæsta og lægsta verði á smurþjónustu fyrir meðal stóra bíla, reyndist rúmlega 2.700 kr. eða 86% verðmunur.  Munur á hæsta og lægsta verði á þjónustu fyrir jepplinga reyndist vera 4.256 kr, sem er 155% verðmunur. Kannað var verð á smurþjónustu fyrir fimm stærðir bíla, smábíl (t.d. Toyota Yaris), minni meðalbíl (t.d. Ford Focus), meðalbíl (t.d. Subaru Legacy), jeppling (t.d. Suzuki Vitara) og jeppa (Mitsubishi Pajero). Lægsta verð á smurningu fyrir smábíl og jeppling var 2.741 kr. hjá Bílverk á Höfn en hæsta verð fyrir smábíla var 4.136 kr. hjá Toyota á Egilsstöðum og hæsta verð fyrir jeppling var 6.997 hjá Bifreiðaverkstæði Önundar á Neskaupsstað. 

Smurþjónusta á jeppa var ódýrust 3.526 kr. hjá Bílaverk á Höfn en dýrust 7.697 kr. hjá Bílaverkstæði Önundar á Neskaupsstað.

Verðkönnunin nær einungis til þjónustu smurstöðvanna og eru engin efni innifalin í verðinu. Innifalið í uppgefnu verði er að lágmarki eftirtaldir liðir: Skipti á olíu á vél, skipti á olíusíu og eyðingargjald olíusíu, smurning í drifsköft og lamir, athugun á loftsíu, olíu á gírkassa/ sjálfskiptingu, bremsuvökva og frostlegi. Sjá nánar niðurstöður í töflu. Smurþjónusta á Austurlandi Kannað var verð á smurþjónustu fyrir bíla á 9 verkstæðum á Egilsstöðum, Fáskrúðsfirði, Eskifirði, Reyðarfirði, Neskaupsstað og Hornafirði.   Hér er aðeins um beinan verðsamanburð á þjónustu að ræða en ekki var lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.   Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.   

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi