AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Hjólbarðaverkstæði Óskars á Fáskrúðsfirði ódýrt

dekkAllt að 5.000 króna verðmunur er á þjónustu hjólbarðaverkstæða við skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu dekkja á jeppa með sautján tommu álfelgum (t.d. Mitsubishi Pajero), sem er 67% verðmunur. Þetta kemur fram í nýrri verðkönnun sem verðlagseftirlit ASÍ gerði hjá 49 þjónustuaðilum víðsvegar á landinu í gær.

Skipting, umfelgun og jafnvægisstilling á smábílum á fimmtán tommu felgum (t.d. Toyota Yaris), var dýrust hjá Hjólbarðaþjónustu Áhaldaleigunnar í Vestmannaeyjum þar sem hún kostaði 7.500 kr. en ódýrust hjá Hjólbarðaþjónustu Hafnarfjarðar, 4.990 kr. Verðmunurinn er 2.510 kr. eða 50%.Þjónustan fyrir smábíla hefur hækkað að meðaltali um 6 % frá könnun sem ASÍ gerði þann 17. apríl sl.

Hæsta verðið á þjónustu fyrir jepplinga með sautján tommu álfelgum var hjá Hjólbarðaverkstæði Kaldasels í Kópavogi, 9.980 kr. en lægsta verðið er hjá Hjólbarðaverkstæði Óskars, Fáskrúðsfirði, 6.000 kr.  Þjónustan fyrir jepplinga á sautján tommu stálfelgum var ódýrust hjá Bílabjörgun á Akureyri 5.900 kr. en dýrust hjá Hjólbarðaverkstæði Kaldasels 7.290 kr..

Dekkjaskipti á meðalstórum jeppa með sautján tommu álfelgum (t.d. Mitsubishi Pajero), er dýrust hjá Bílabót á. Sauðárkróki en ódýrust hjá Hjólbarðaverkstæði Óskars á Fáskrúðsfirði, 7.500 kr.

Dekkjahöllin neitaði þátttöku

Dekkjahöllin á Egilstöðum, Akureyri og í Reykjavík neituðu þátttöku í verðkönnun verðlagseftirlitsins.

Sjá nánar niðurstöður eftir landssvæðum í töflu.

Kannað var verð á þjónustu á skiptingu, umfelgun og jafnvægisstillingu hjólbarða á 49 hjólbarðaverkstæðum í Reykjavík, Kópavogi, Hafnarfirði, Garðabær, Húsavík, Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði, Vestmannaeyjum, Selfossi, Fáskrúðsfirði, Eskifirði, Reyðarfirði, Neskaupsstað, Hornafirði og á Sauðárkróki.

Hér er aðeins um beinan verðsamanburð á þjónustu að ræða en ekki var lagt mat á gæði eða þjónustu söluaðila.

Óheimilt er að vitna í könnunina í auglýsingum og við sölu nema með heimild ASÍ.

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi