Ársfundur trúnaðarmanna AFLs
Ársfundur trúnaðarmanna AFLs hefst á morgun og eru í dag síðustustu forvöð að skrá sig til þátttöku. Sjá dagskrá og fyrri kynningu hér að neðan.
Dagskrá Ársfundar trúnaðarmanna AFLs Starfsgreinafélags liggur nú fyrir. Eins og áður hefur komið fram verður efni fundarins helgað starfssemi félagsins og stefnumótun. Aðeins einn frummælandi verður sóttur út fyrir raðir félagsmanna en það er Gísli Sverrir Árnason, stjórnsýslufræðingur, en hann skrifaði m.a. sögu verkalýðshreyfingarinnar í Austur Skaftafellssýslu. Skráning trúnaðarmanna stendur nú yfir og virðist stefna í mjög góða þátttöku þeirra. Fundurinn er aðeins opinn kjörnum trúnaðarmönnum AFLs á vinnustöðum svo og stjórn félagsins og starfsfólki.
Ársfundur trúnaðarmanna AFLs 2010 - Dagskrá
Dagur 1 – 26. mars
14:00 Setning – Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir
14:10 Hópastarf kynnt – Eyrún Valsdóttir
14:20 Hópavinna – Viðfangsefni: AFL – þátíð – nútíð – framtíð
15:10 Kaffi15:30 Uppbygging félagsins – Hjördís Þóra Sigurþórsdóttir
16:00 Stefnumótun og starfsemi – Sverrir Albertsson
16:30 Kaffi
16:45 Verkalýðshreyfingin í ljósi sögunnar – áhrif á samfélagið – Gísli Sverrir Árnason
17:45 Formlegri dagskrá lokið
19:00 Kvöldverður
Dagur 2 – 27. mars
09:00 – Tæki og tól félagsins til að vinna að stefnumiðum sínum kynnt.
09:30 - 12:30 Hópavinna (1.- 3. umferð)
Unnið með fjögur viðfangsefni: ·
Félagspólitísk stefnumótun·
Þjónusta og starfsemi félagsins·
Samfélagsleg staða og ábyrgð
Orlofssjóður og sjúkrasjóður
12:30 – 13:15 Hádegisverður
13:15 – Áframhaldandi hópavinna (4. umferð)
14:15 – Áframhaldandi hópavinna (5. umferð)
15:00 - Kaffihlé
15:15 – Niðurstöður og stefnuyfirlýsing Stefnuyfirlýsing borin upp svo og önnur mál er upp kunna að koma.
17:00 - Ársfundarslit og heimferð