Aðalfundi Verkamannadeildar lokið
Aðalfundur Verkamannadeildar AFLs var haldinn í gærkvöldi. Á fundinum flutti formaður deildarinnar Jóna Járnbrá Jónsdóttir, skýrslu um störf deildarinnar og ennfremur voru aðstæður í þjóðfélaginu til umræðu og það sem framundan er í kjaramálum.
Stjórn deildarinnar var síðan kosin og hlutu eftirfarandi kosningu:
Formaður: Jóna Járnbrá Jónsdóttir,
Varaformaður Jens Hjelm
Ritari: Steinunn Zöega
Meðstjórnendur:
Kristrún Gunnarsdóttir,
Stefanía Stefánsdóttir,
Varamenn:
Elías Jónsson
Bergþóra Ósk Guðmundsdóttir
Haukur Stefánsson