Starfsfólk AFLs í Saltnámunum
Starfsfólk AFLs er á ferðalagi í Póllandi ásamt mökum sínum. Ferðin er farin undir styrkri stjórn Gosiu Libera, eins starfsmanna félagsins og hefur félag starfsmanna safnað í sjóð í rösk tvö ár til að standa straum af ferðinni.
Í dag lá leiðin í saltnámurnar í Wieliczka og tók leiðangurinn 3 tíma og náðum við einungis að skoða lítið brot af þessu stórkostlega mannvirki sem var öldum saman grundvöllur verulegs hluta útflutningstekna Póllands. Á myndinni má sjá hluta hópsins hlýða á hjálmi prýddan leiðsögumann á um 95 metra dýpi frá yfirborði.