Ákvörðun um hitaveitu frestað
Eigendafundur Orlofsbyggðarinnar á Einarsstöðum fjallaði um mögulega hitaveitu í orlofsbyggðinni í gær. Ákveðið var að boða til annars fundar innan skamms tíma þar sem endanleg ákvörðun væri tekin.
Áætlað er að hitavatnsvæðing byggðarinnar muni kosta tæplega 90 milljónir króna og er því um dýra framkvæmd að ræða og töldu eigendur, þ.e. 8 verkalýðsfélög, rétt að vanda allan undirbúning og fá nánarari skýringar við skýrslu Mannvits Verkfræðistofu.
Skýrsla Mannvits gerir ráð fyrir að hitun vatns með svokallaðri "kurlbrennslu" muni gefa hagstæðast orkuverð og þá möguleika á heitum pottum og heilsársnotkun byggðarinnar allrar.
Byggðin er í dag kynnt með rafmagni.