Bræðslur: Viðræðum slitið
Þá er einnig deilt um stöðu samningsins en SA heldur því fram að hann sé hluti aðalkjarasamnings á meðan verkafólk bendir á að samningurinn hafi ætíð verið sjálfstæður og atkvæðagreiðslur um hann alltaf haldnar sérstaklega og þrátt fyrir að samningstími nú sé hinn sami og í aðalkjarasamningi hefur það yfirleitt ekki verið á þann veg.
Þar sem svör Samtaka atvinnulífsins voru afdráttarlaus og gáfu litla von til að samkomulagi yrði náð með góðu slitu fulltrúar AFLs og Drífanda viðræðunum og verða samninganefndir félaganna kallaðar saman fljótlega til að fara yfir málið og skipuleggja næstu skref.
Tekjur fiskimjölsverksmiðjanna hafa hækkað um kringum 50% á samningstímanum vegna gengisþróunar en launakröfur starfsmanna hljóða upp á 27%.