Reynt til þrautar!
Samninganefnd AFLs og Drífanda kom saman á fjarfundi fyrir fund í húsi sáttasemjara og samningamenn AFLs og Drífanda gengu á fund viðsemjenda með tilboð sem samninganefndin taldi grundvöll samningagerðar um helgina. Í tilboði félaganna var krafa um hækkun launataxta verulega endurskoðuð frá upphaflegri kröfugerð.
Samningamenn SA gerðu gagntilboð og stóðu viðræður fram undir kvöldmat og voru samningamenn AFLs og Drífanda í sambandi við samninganefndarmenn félaganna er biðu í viðbragðsstöðu á Austurlandi og Vestmannaeyjum eftir kalli suður ef útlit væri fyrir að hægt væri að setjast við raunverulega samningagerð.
Ekki hefur þótt ástæða til að kveða samninganefndarmenn suður og líta má á fundarboð sáttasemjara á morgun sem úrslitatilraun til að ná samningum.