Samið um bræðslur og höfnina
Í dag laust fyrir kl. 15:00 var skrifað undir nýjan kjarasamning AFLs og Drífanda vegna starfa í fiskimjölsverksmiðjum. Umræður um þann samning hafa staðið frá því í vetur og verið harðar.
Samningurinn er að mati samningamanna félaganna ásættanlegur þrátt fyrir að ekki hafi náðst sá árangur sem stefnt var að í kröfugerð félaganna.
Þá var í gær gengið frá samningi um störf á Mjóeyrarhöfn. Sá samningur hefur verið í undirbúningi síðustu 3 mánuði.
Samningarnir verða kynntir félagsmönnum og lagðir til afgreiðslu í atkvæðagreiðslum á næstu dögum.