Slitnað upp úr kjaraviðræðum milli Starfsgreinasambands Íslands og sveitarfélaganna
Samninganefnd Starfsgreinasambands Íslands og Flóafélaganna sleit á sjöunda tímanum í kvöld viðræðum sínum við Samninganefnd sambands íslenskra sveitarfélaga.
Samningar hafa verið lausir frá 1.desember 2010 og hafa viðræður um nýjan kjarasamning staðið yfir með hléum frá áramótum. Deilur standa milli aðila um launatöflu sem sveitarfélögin hafa boðið og leggja ofuráherslu á að ná fram. Fjölmennasti hópur starfsmanna innan SGS- félaganna sem starfar hjá sveitarféögunum starfa í leik- og grunnskólum. Nýja launataflan væri að færa þessum hópum starfsmanna kr. 20.158 á sama samningstíma og launafólk á almennum markaði væri að fá kr. 34.000 (31. jan. 2014).
Sveitarfélögin leggja áherslu á að semja til loka september 2014 og þá væru þessir starfsmenn búnir að fá tæpar 27 þúsund kr. í hækkun. Þá vantar um 84 þúsund krónur á ársgrundvelli upp á laun þessara starfsmanna, miðað við þær launahækkanir sem almennt hefur verið samið um í samfélaginu.
Samninganefndir SGS og Flóans hafa algjörlega hafnað þessari framsetningu gera þá kröfu að Samband íslenskra sveitarfélaga fari sömu leið og Reykjavíkurborg hefur gert gagnvart sínum viðsemjendum. (Af heimasíðu SGS)