Nýjar orlofsíbúðir AFLs afhentar
Orlofssjóður AFLs Starfsgreinafélags stendur nú í stærstu einstöku fjárfestingu félagsins frá upphafi, en verið er að afhenda orlofsíbúðir er félagið hefur keypt í Mánatúni 3 - 5 í Reykjavík - alls 12 íbúðir. Í staðinn voru 11 eldri íbúðir félagsins seldar.
Í fyrradag tók félagið við lyklunum að fyrstu 6 íbúðunum og eru iðnaðarmenn á vegum félagsins nú að vinna að lokafrágangi en vonir standa til að íbúðirnar verði tilbúnar til útleigu fyrir félagsmenn um næstu mánaðarmót.
Nánar er fjallað um þetta átak í sérstöku fréttabréfi AFLs sem dreift er í öll hús á Austurlandi þessa dagana og fylgdi með Austurglugganum.