Samningur við Keahotel
AFL Starfsgreinafélag gerði á dögunum samning við Keahotel um gistingu fyrir félagsmenn sína, um er að ræða gistingu á Hótel Kea Akureyri, Hótel Norðurlandi Akureyri, Hótel Björk í Reykjavík og Hótel Gígur í Mývatnssveit. Panta þarf gistingu á viðkomandi hóteli í síma 460-2000 og taka þarf fram að greitt verði með hótel-gistimiða. Gistimiðana er svo hægt að kaupa á næstu skrifstofu AFLs, sjá nánar um verð:
1. júní – 31. ágúst 1.sept.-1.júní
Hótel Kea Akureyri (allt árið) Pr.nótt Pr.nótt
• Eins manns herbergi með baði Kr: 16.000.- Kr: 9.000,-
• Tveggja manna herbergi með baði Kr: 20.000.- Kr: 12.000.-
Hótel Norðurland Akureyri (allt árið)
• Eins manns herbergi með baði Kr: 13.000.- Kr: 8.000.-
• Tveggja manna herbergi með baði Kr: 17.000.- Kr: 10.000.-
Hótel Björk í R.vík (allt árið) og hótel Gígur í Mýv.sveit (á sumrin)
• Eins manns herbergi með baði Kr: 13.000.- Kr: 8.000.-
• Tveggja manna herbergi með baði Kr: 17.000.- Kr: 10.000.-
Morgunverður af hlaðborði innifalinn á öllum hótelum Keahotela
Ráðlegt er að bóka með fyrirvara. Við pöntun verður að koma fram að greitt verði með gistimiða.
Einungis er bókanlegt í gegnum síma: 460-2000
Frekari upplýsingar er hægt að fá á næstu skrifstofu AFLs eða í síma: 4 700 300.