AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

ASÍ hafnar skattlagningu á lífeyrissjóði

Samninganefnd ASÍ sendi í dag fjármálaráðherra bréf þar sem fyrirhugaðri skattlagningu á lífeyrissjóði til fjármögnunar sérstökum vaxtabótum. Samninganefndin bendir á að slík skattlagning myndi leiða til lækkunar lífeyrisgreiðslna þeirra sem njóta lífeyris úr almenna lífeyriskerfinu.

Samninganefnd ASÍ bendir jafnframt á að í janúar nk. verður tekin afstaða til þess hvort gildandi kjarasamningum verði sagt upp eða þeir framlengdir m.v. forsenduákvæði og segir í bréfi Gylfa Arnbjörnssonar til fjármálaráðherra m.a. ;

Jafnframt er vakin athygli á því að ASÍ og aðildarsamtök þeirra taka afstöðu til framlengingar kjarasamninga fyrir 20.1 2012. Aðgerðir til jöfnunar lífeyrisréttinda er ein þeirra forsendna fyrir framlengingu sem skoðuð verður fyrrihluta janúar 2012 af formönnum aðildarfélaga ASÍ og samninganefndar sambandsins.

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi