AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Stapi Lífeyrissjóður: Engin samvinna um fjármögnun

Stjórn Stapa lífeyrissjóðs ákvað á fundi sínum í dag að sjóðurinn muni draga til baka þátttöku sína í viljayfirlýsingu um fjármögnun á Landspítalanum, verði af áformum stjórnvalda um skattlagningu á lífeyrissjóðina.
 

Fram kemur í tilkynningu að stjórnin mótmæli því harðlega að sjóðir almenns launafólks séu skattlagðir sérstaklega. Þessi skattlagning rýri lífeyrisréttindi heimilanna í landinu ekki síst þeirra tekjulægri, á meðan opinberir starfsmenn, þ.m.t. alþingismenn og ráðherrar, fái þetta bætt með skattfé.

„Stjórnin telur ekki forsendur fyrir samstarfi við stjórnvöld um fjármögnun verkefna á sama tíma og ráðist er að grundvelli lífeyrissjóðakerfisins með þessum hætti, svo ekki sé talað um þá grófu mismunun sem í þessu felst,“ segir í tilkynningu. (af vef mbl.is)

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi