Aðalfundur sjómannadeildar Afls var að venju haldinn milli jóla og nýárs.
Á fundinum voru rædd þau málefni sem brenna á sjómönnum. Þar eru kjaramálin efst á blaði en samningamálin ganga hægt fyrir sig.
Verðlagsmálin, fiskverðssamningar, upptaka dagpeninga í stað sjómannaafsláttar, hækkun sektar fyrir kjarasamningsbrot, fækkun í áhöfnum, björgunarlaun, þyrlumál og mætingar á fundi voru þau mál sem meðal annars voru rædd.
Stjórn deildarinn var kosin til árs, en hana skipa:
Formaður Grétar Ólafsson
Varaformaður Stephen R. Johnson
Ritari Jón B. Kárason
Meðstjórnendur
Grétar S. Sigursteinsson
Sigurður Karl. Jóhannsson
Varamenn: Sigurd Jón Jacobsen
Þorsteinn J. Þorsteinsson
Unnsteinn R. Kárason