AFL starfsgreinafélag

Til góðra verka

 

AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag AFL starfsgreinafélag

Félagsskírteinin eru lyklar

thumb_felagsskAFL Starfsgreinafélag er að undirbúa að setja nýjan orlofsvef félagsins í gang - þar sem bókun, greiðsla og afhending lykla verður sjálfvirkt ferli sem félagsmenn stjórna sjálfir úr einkatölvum sínum. Sem fyrsti liður í innleiðingu þessa kerfis hafa lyklabox nú verið fjarlægð úr orlofsíbúðum félagsins í Reykjavík og eru félagsskírteini nú virkjuð sem lyklar að íbúðunum.

Það er því mikilvægt að félagsmenn séu með félagsskírteini sín með sér þegar þeir dvelja í orlofsíbúðum félagsins. Ef samferðarmenn (maki eða börn) leigutaka eiga einnig félagsskírteini - er hægt að fá þau virkjuð sem lykla með erindi á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.

Það verður unnt að fá aukaskírteini til að nota á meðan leigu stendur og verður innheimt tryggingagjald fyrir þau aukaskírteini - kr. 2.000 fyrir hvert kort. Tryggingagjaldið verður endurgreitt við skil á kortinu.

Ef kalla þarf út umsjónarmann íbúða til að afhenda lyklakort af því félagsmaður hefur týnt sínu korti eða kemur ekki með það - verður innheimt tryggingargjald vegna aukakorts - auk þess sem innheimt verður fyrir útkall - ef það er utan dagvinnutíma.

 

 

einn rettur logo 002            VIRK starfsendurhæfingasjóður     vertuaverdi