Kjörfundur um ALCOA samning
Rafræn kosning um nýgerðan kjarasamning AFLs og RSÍ við ALCOA Fjarðaál stendur nú yfir. Nokkrir félagsmenn AFLs Starfsgreinafélags hafa lýst óánægju sinni með fyrirkomulag kosninganna - þ.e. að þær séu rafrænar og þeir félagsmenn sem ekki hafa aðgang að tölvu í vinnu eða á heimilum sínum hafa óskað eftir að greiða atkvæði með hefðbundnum hætti - þ.e. á kjörseðil.
Vegna þessara óska hafa félögin ákveðið að opna kjörfund kl. 9 nk. mánudag á skrifstofu AFLs Starfsgreinafélags að Búðareyri 1, Reyðarfirði og stendur kjörfundur til hádegis miðvikudags 13. mars á skrifstofutíma AFLs. Ennfremur verður unnt að koma til móts við óskir félagsmanna um afhendingu kjörseðla utan skrifstofu og skrifstofutíma berist óskir um það. Kjörskrá liggur frammi á skrifstofu AFLs að Búðareyri og þar verður einnig unnt að kæra sig inn á kjörskrá.