Mikilvægur dómur fyrir smábátasjómenn
Óheimilt er að draga olíukostnað frá aflverðmæti til skipta á smábátum. AFL Starfsgreinafélag stefndi, fyrir hönd félagsmanns útgerð á Stöðvarfirði vegna vanreiknaðra launa, en við uppgjör var stuðst við skiptaprósentu skv. kjarasamningi SSÍ við Landssamband smábátaeigenda - en kostnaður skv. kjarasamningi SSÍ við LÍÚ dreginn frá aflverðmæti. Í kjarasamningi SSÍ við LS kemur skýrt fram að skipta eigi úr heildarverðmæti aflans og staðfesti dómurinn það. Þetta er því mikilvægur varðandi réttarstöðu smábátasjómanna. Sjá dóminn í heild
Alls námu vangreidd laun á þriggja mánaða tímabili tæpum 1.600 þúsundum króna. Héraðsdómur Austurlands féllst á sjónarmið AFLs og fékk félagsmaðurinn dæmd fullan aflahlut skv. kröfum félagsins.
Talsverðar deilur hafa staðið um útreikning aflahluts á smábátum um langt skeið - en í ágúst 2012 gerði Sjómannasamband Íslands (m.a. fyrir hönd Sjómannadeildar AFLs Starfsgreinafélags) kjarasamning við Landssamband smábátaeigenda - sem dómurinn viðurkennir nú sem lágmarkskjör á smábátum.
Skiptaprósenta skv. kjarasamningi við LS átti í þessu tilfelli að vera 21,6% af aflaverðmæti - en ef miðað hefði verið við kjarasamning við LÍÚ hefði útgerðinni verið heimilt að reikna skipti af 70% aflverðmætis en í því tilfelli hefði skiptaprósenta verið 30,3%.
Báturinn sem um ræðir í þessu máli er gerðinni Cleopatra - plastbátur tæpir 12 m að lengd og með 4 menn í áhöfn. Báturinn var á línuveiðum með beitingavél um borð.
Félagið mun á næstu vikum setja sig í samband við smábátasjómenn og útgerðir og kanna hvernig uppgjörsmálum er háttað.