Ný sumarvinna? - ekki láta svindla á þér!
Flestir sem eru í framhaldsskóla og háskóla á Íslandi vinna í sumarfríinu. Þetta hefur viðgengist lengi hér á landi, þótt víðast annars staðar í heiminum sé þetta óþekkt. Löngum hefur sumarvinna skólafólks verið litin jákvæðum augum. Öllum sé hollt að vinna, þetta sé ágætur undirbúningur fyrir þátttöku á vinnumarkaði síðar og svo sé gott að vinna sér inn dálítinn pening fyrir veturinn.
En þótt þú sért bara að vinna í stuttan tíma - í einn, tvo eða þrjá mánuði - þá er engin ástæða til að láta svindla á þér. Sem betur fer eru langflestir atvinnurekendur stálheiðarlegir, en því miður ekki allir. Og á hverjum er líklegast að þeir reyni að svindla? Auðvitað þeim sem hafa minnsta reynslu. Þess vegna skaltu kynna þér vel hvernig hlutirnir eiga að vera.
Passaðu upp á
Tímaskráninguna
Ráðningarsamninginn
Kynntu þér launataxtana og kjarasamninginn á heimasíðu AFLs.
Félagssvæði AFLs Starfsgreinafélags er frá Skaftafelli og austur um land allt að Þórshöfn á Langanesi. Ef þú vinnur verkamannastörf, við umönnun, í ferðaþjónustu, verslun-eða veitingastað eða í byggingarvinnu, sjómennsku eða ótal önnur störf er AFL þitt stéttarfélag. Við erum aðeins einum tölvupósti frá þér - sendu okkur línu á This email address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it. og við getum svarað spurningum sem þú kannt að hafa.
Ef það vantar upp á launin þín, tímaskráning vitlaus eða önnur vandamál koma upp – þá leitarðu til okkar og við sjáum um málið. Þess vegna ertu í stéttarfélagi.